Líf mitt frá degi til dags.
Önnur Bönd
30.01.2007 11:07:32 / numis

Kominn með MySpace..

Ég er nú eiginlega alveg hættur að blogga.. en ég er kominn með My space og það er www.myspace.com/numisnaer Heyrumst..

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 06:31:58 / numis

Vinna og aftur vinna..!

Ég er að vinna svona að meðaltali 12 tíma á sólahring núna.. er að nudda og svo löggast á eftir því. En nebla á næturvakt núna!! Það er frekar súr vakt!! Mæti kl 23.00 og er búinn kl. 07:30. Skemmtilegt. :lol: Og stundum kemur maður meira að segja fyrr eins og í kvöld þá mætti ég kl 20:00 og er til 07:30. þannig í dag er ég búinn að vera að vinna í 15 tíma eða eitthvað!!

Ok nóg um það..

Ég lenti í því í nótt að maður reyndi að stinga okkur af á bíl sínum sem hann átti ekkert í einusinni.. svo hljóp hann út úr bílnum en ég tæklaði hann eftir smá tíma og aumingja maðurinn sem er sprautufíkill var hálf klambrúleraður eftir það atvik!! En honum er nær að hlaupa.. svo tekur maður enga sjensa þegar maður er að elta svona vitlisinga.. þegar maður nær þeim þá neglir maður þeim bara í jörðina og járnar þá um leið því þessir dóphausar geta verið svo ruglaðir og verið með ýmis vopn eiða eitthvern viðbjóð á sér. En ég veit nú ekki hvort ég meigi vera að segja ykkur þetta en svona er nú litla Ísland í dag!!! Það er ymislegt sem þið sjáið ekki greyin mín!

En núna ætla ég bráðum að fara að koma mér heim í sturtu og skríða upp í rúmm að sofa til 3 og þá fer ég aftur að vinna við að nudda og svo er ég á slysó á morgun og hinn..

 Svo annað ég er ekki búinn að sjá Elínu í viku núna næstum því þegar ég kem heim þá er hún að fara að læra en þessi vikt er búin á sunnudagsmorgni þannig ég fer að sjá hana aftur brátt.. svo þegar maður er að vinna svona mikið getur maður ekkert æft neitt heldur er maður bara að safna spiki!! étur alltaf eitthvern helvítis skyndibita!!

En svo er hann Desi bróðir komin heim og ég held að Erla verla sé að koma heim í dag!

Bið að heilsa og góða nótt.. allavega hjá mér!"! 8|


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 19:06:41 / numis

Netið..

Ég var að fatta hvað það er þægilegt að vera með netið.. guð minn góður.. var að fá netið í fyrsta sinn á mitt eigið heimili og þvílíkur unaður!! Það er bara hægt að gera allt á þessu fjandans dóti... ég vissi það nú reyndar. Málið er bara að ég þarf að fara að læra á þetta. Er ekkert svo rosalega góður í tölvum en enda enginn furða því ég hef aldrei verið að fikta í þessu!! En með tímanum kemur þetta allt hjá mér!

En hvað segið þið annas?

Við Ella erum að fara að flytja bráðum.. eða í mars eða apríl.. og það verður ekki langt heldur um svona 100 metra. Við erum núna á Hörpugötu 7 en förum á Hörpugötu 1. Það er miki nýrra og flottara og stærra eða 70 fermetrar og miki dýrara líka en mér er alveg sama um það.. Það verður bara gaman að flytja. Svo er stefnan að kaupa sé eftir 2 ár. Vona það allavega svo innilega!!

Svo er ég hættur við að verða Lögga þegar ég er orðinn stór.. ;) ætla aftur í skóla og klára Rafeindavirkjann.. Hvernig lýst ykkur á það??  Mér finnst það cool og svo ætla ég nú að reyna að láta það gott heita af skólagöngu í bili!! Maður getur ekki verið allt!!

En ég hef sagt nóg í bili! Bið að heilsa!

Númi Snær.


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 19:56:32 / numis

XXXXX

Hæ hæ.. ég er nú svo hrikalega latur að skrifa hérna inná þannig ég ætla nú bara að láta ykkur vita að það verður ekkert meira fyrr en ég fæ netið heim til mín.. Nenni ekki að vera að blogga eitthvað í vinnunni.. Það er nóg annað að gera hér.. En stay cool!! ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.09.2006 22:02:24 / numis

Heil og sæl.

Jæja það er nú doldið langt síðan síðast.. Maður er hálf latur  í þessum skriftum svei mer þá!! En annars bara allt gott að ´frétta er að vinna í LR eins og sumir vita og það er mjög skemmtilegt og spennandi starf en maður er svo nýr í þessu að maður er bara enn að læra hvernig maður á að haga sér og bregðast við.. En hafiði það gott og ég byð að heilsa!

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 11:50:58 / numis

24 ágúst..

það styttist í lögguprófið sem er 24 ágúst og mér er farið að hlakka mikið til!! ég er að lyfta og hlaupa og svona og vitiði hver er byrjaður að æfa mér??!! enginn annar en hann Helgi Rúnar!! hann er að fara að hrista af sér slenið og reyna að koma sér í smá form.. en annars er bara allt þokkalegt í fréttum hjá mér!! ég ætla að vera með smá partí á föstudaginn og svo er kveðjupartí hjá Ara kallinum á laugardaginn!! en við heyriumst seinna!!! Bless!!

» 7 hafa sagt sína skoðun

08.07.2006 10:04:07 / numis

Rokk fest á Stokkseyri fimtudaginn 13 júlí.

Allir að mæta á Drauga á fimtudaginn kl 10... Fram koma... Valli Granni og co. Ég og Erla.. (Jonny Bravo og fí fí..)  Ari, kalli og hörður held ég. Svo er það Nilfisk, Pind og Óvana!! Við óvanamenn ætlum að taka eitt splunkunýtt lag þannig að allir áhugamenn um tónlist verða að vera á staðnum!!!  Ég sé ykkur öll með bros á vör!!

Frítt inn.. Bless í bilil..


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 13:13:02 / numis

Hæ hæ..

Ta er madur a kanari og tad er buid ad vera rosa fint vedur og allt gengur vel. eg ætla samt ad hafa tetta stutt en tetta er mjog mognud eyja!! Tad eina sem eg er ad gera herna er ad æfa og vinna og svo reynir madur ad liggja eitthvad i solbadi.

Bless i bili..


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 13:41:03 / numis

Kanarí.

Þá er vika þangað til ég fer til Kanarí... Það verður geggjað, bara standa á bakkanum og þjálfa sund og svo getur maður farið í ræktina á milli æfinga og svoleiðis.. sól og blíða og 30 stiga hiti!!

Hef svosem ekkert annað að segja nema bless ef ég heyri ekki í ykkur áður en ég fer út í 2 vikur¨!! Bless..


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 19:57:00 / numis

Júróvison..

Ef Silvía kemst áfram þá er grill og bjór heima hjá mér en ekki í boði míns.. þið komið með ykkar eigið!! ég ætla að vera heima að grilla og þið getið notað grillið!!  Sjáumst ef þið komið!! bleeess..

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 14:45:39 / numis

Skólaslit.

Þá er nú bara komið að því að skólinn klárist.. Mikið er ég nú feginn..  ég fer í eitt próf á fimmtudaginn og svo eru skólaslitin  12 apríl. 

Annars er nú bara allt gott að frétta af mér, er að vinna á fullu og svo er ég nú bara að bíða eftir því að hún Elín komi heim til mín.. (það þarf svo að laga almennilega til í íbúðinni þið skiljið)  nei nei bara smá djók. En hún kemur 11 apríl daginn fyrir útskriftina.

 Núna er ég byrjaður að taka á því í ræktinni aftur því nú er enginn afsökun útaf skóla eða neinu svoleiðis!! Svo þarf bara að fara að starta pönkhljómsveitinni PIND aftur ef það er hægt að kalla hana pönkhljómsveit.. hún er nú bara frekar rokkuð frekar en pönk..  Hvað er hægt að skrifa meira?? já ég skrapp aðeins til Köben yfir helgi eða í 4 daga og hitti Ellu mína. svo komu Alí og Jakó líka og það var verslað og verslað og verslað og ég fór á hausinn.. en svo var líka djammað smá og ég drakka fullt af tuborg classsik  sem er bara góður!! mmmmmm... 

Já þetta er nú það helsta sem ég hef að segja í augnablikinu og þá ættuð þið að vera ánægð því nú er ég búinn að blogga smá!! svo ætla ég sennilega að kaupa mér tölvu í sumar!  segjum það..bæ


» 9 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 21:57:43 / numis

Að líða undir lok..

Blessuð öll sömul.. ég ætla að skrifa nokkrar línur.

Núna er skólinn alveg að verða búinn.. það er útskrift 12 apríl og´ég get ekki beðið eftir því!! það verður svo gott að verða búinn þótt þetta er búinn að vera góður tími..

svo fer ég til DK á fimmtudaginn að hitta hana Elínu mína sem ég sakna alveg óendanlega mikið!!!! það er hund fúllt að vera svona einn í burtu frá henni!! en það verður sko gaman að hitta hana!!

Og svo er líka árshátíð hjá Nordica á morgun og það verður nú eitthvað fjör!!

Allavega hafiði það gott og sé ykkur... Bless..


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 13:40:54 / numis

Jæja þá er Erla Verla kominn heim í stokkseyrarkot..

Þeir sem ekki vissu að Erla systir mín lenti í bílslisi á föstudaginn er nú kominn heim eftir skrautlegt bull á spítalanum.. krampaköst og eitthver læti en það er samt allt gott að frétta af henni núna! Svo vonar maður bara að hún haldist svona...

En í gær pantaði ég mér ferð til DK 23 til 27 mars.. kíkja í köben aðeins og hitta hana Ellu gellu.. Og það er núna bara mánuður og 7 dagar eftir af skólanum.. jibbí ég er sko byrjaður að telja niður!!

En kæru lesendur þá verð ég að kveðja við heyrumst síðar.. Bless í bili!!

P.S Elín ertu að læra nudd þarna úti??


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 10:24:37 / numis

Próf kvíði..

Á morgun er ég að fara í annað prófið  mitt í vöðvafræði og  það er reyndar eflaust það léttasta sem verður af þeim 5 sem ég tek en ég er samt ferlega kvíðinn eitthvað..

Annars er bara allt ágætt að frétta af mér.. Elín fer alveg að fara út núna og það verður bara spennandi að sjá hvernig það allt saman fer.. :haha:  Hún er eitthvað farin að verða stressuð því þetta eru jú 2 mán sem er ekkert auðvelt.  En ég hef samt nóg að gera á meðan.. ég ætla að reyna að fara í ræktina eitthvað og svo bara vinna á fullu og vera í þessum bölvaða skóla.. En það eru nú ekki nema 2 mán eftir!! jibbí.. það verður svo gott að vera búinn með þetta að það er ekki fyndið!!

En verð að fara og Ari við verðum að finna okkur tíma til að nudda þig!!

Blessss...


» 10 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 23:13:03 / numis

Halló öllsömul..

Jæja það er nú orðið svoldið langt síðan síðast.. En eins og þið vitið þá á ég ekki tölvu og er ekkert að huga að svoleiðis kaupum strax en það kemur að því..

Nú eru bara 2 mánuðir eftir af nuddskólanum sem betur fer því maður er nú orðinn doldið lúinn þótt skólinn sé mjög skemmtilegur þá er bara erfitt að vera í svona kvöldskóla og aðra hverja helgi.  En ég er orðinn voða flinkur þannig ef ykkur vantar nudd þá bara bjalliði í mig.

Svo er Elín að fara til danmerkur núna 24 feb og verður í 2 mán held ég.. hún er að fara í líðháskóla þarna eitthverstaðar. veit nú voða lítið um þetta allt saman. :$

En hvað segi þið nú gott?? Ég er ný orðinn 26 ára og það er voða svipað og að vera 25 þannig veriði ekki hvíðinn fyrir því að eldast.. hehe  :cry:  Nei mér finnst það nú eiginlega hundfúlt. ég er að verða 30 ára for crying at loud.. 

En núna ætla ég að kveðja í bili og ég blogga vonandi aftur áður en ég verð 27 ára.. :haha:   Og takk fyrir gjöfina Ösp.


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6